Rúmgóður, hagnýtur og rafknúinn fjölskyldujeppi með miklum búnaði.
BYD Seal U 4x4 er tengiltvinnjeppi sem býður upp á einstaklega vistvæna akstursupplifun. Hann sameinar mikla orkunýtingu og sparneytni, mikið viðbragð og hröðun auk hljóðláts aksturs og þýðleika í akstri.
BYD Super DM tæknin stuðlar að einstaklega þýðum aksturseiginleikum sem líkjast frekar eiginleikum hreinræktaðra rafbíla. Tvinnaflrásin felur í sér einfaldleika með óaðfinnanlegum gírskiptum sem tryggja áreynslulausan akstur og mikil akstursþægindi.
Upplifðu þægindin við DC hraðhleðslu með Super DM tækninni. Einungis tekur 35 mínútur að hlaða úr 30% hleðslu upp í 80% hleðslu. Einnig er val um AC hleðslu fyrir heimahleðslustöðvar.
Nú er tækifæri til að njóta sömu ánægju og hagnýtra þæginda af Vehicle-to-Load tækninni (VtoL) og rafbílaeigendur hafa einir notið fram til þessa. Hægt er að breyta BYD DM gerðum með VtoL í færanlegar orkustöðvar sem geta verið orkugjafi fyrir fjöldann allan af raftækjum, allt frá tölvum, leikjatölvum og skjávörpum til hraðsuðukatla eða útigrilla. VtoL tæknin er nytsamleg tækni fyrir fjölskylduna þegar haldið er í ævintýraferðir eða til annarra hagnýtra nota. Hún getur gefið fjölskylduferðinni ferskan blæ uppfullan af nýrri reynslu.
Með BYD Super DM tækninni fer saman mikið afl og orkuskilvirkni í hverri ferð. Heildarafl aflrásarkerfisins er allt að 238 kW. Það má því vænta kraftmikillar akstursupplifunar sem einnkennist af mikilli hröðun og svörun. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km hraða er sambærileg og frá 2,0T vél. Rafmótorinn státar af 10 millisekúndna viðbragðstíma sem eykur til muna alla nákvæmni í aksturseiginleikum.
Seal U 4x4 tengiltvinnbíllinn býður upp á einstaka akstursupplifun. Hann er búinn hátæknivæddri NVH-tækni (hávaði, titringur, harka) sem tryggir yfirvegað og afslappað andrúmsloft í akstri.
Apple
CarPlay
Snúanlegur
snertiskjár
Stór sóllúga
með renniopnun
Í Seal U 4x4 er stór, snúanlegur snertiskjár sem gegnir hlutverki miðlægrar stjórnstöðvar fyrir tengingar og upplýsinga- og afþreyingarkerfið. Fjölda aðgerða má stýra með raddstýringu sem tryggir afslappaðri og ánægjulegri akstursupplifun og um leið tafarlaust aðgengi að rauntímaupplýsingum.
Farangursrýmið í BYD Seal U 4x4 er ríkulegt, 425 lítrar að rúmmáli sem hægt er að stækka í hvorki meira né minna en 1.440 lítra með því að fella aftursætin niður. Rúmgóð hönnun þessa tengiltvinnjeppa býður upp á fjölhæfa og hagnýta möguleika til að koma öllum farangrinum fyrir á einfaldan hátt.
Njóttu fegurðar náttúrulegrar birtu og útiloftsins. Tengiltvinnjeppinn kemur með stórri sóllúgu með renniopnun. Sóllúgan veitir mikilli birtu og fersku lofti inn í farþegarýmið, jafnt á heiðskírum sólardegi eða í stjörnuskini að næturlagi, og vekur upp sterka tilfinningu fyrir umhverfinu.
Seal U 4x4 tengiltvinnbíllinn kemur með 8 ára/160.000 km ábyrgð á rafhlöðu. Ábyrgð á bílnum er 5 ár/100.000 km. Allir bílar eru ryðvarðir hjá Mercasol í Noregi. Meðhöndlunin ver bílinn gegn ryðmyndun og lengir endingartíma hans. Ryðvörnin er innifalin í verðinu.