Ný kynslóð af Atto 3 er komin

EVO AWD sameinar afl, drægni og þægindi í einum vel útbúnum fjölskyldubíl. Rúmgott innanrými, öflug rafhlaða og snjallar lausnir gera hann að traustum félaga í daglegu lífi – og á lengri ferðum.

Drægni (WLTP)

470 km

Hleðslutími 10-80%

25 mín

0-100 km/klst

3,9 sek

Dráttargeta

1500 kg

Kynntu þér framtíðina

Með uppfærðri aflrás, lengri drægni og hraðari hleðslu sameinar EVO AWD hagkvæmni og akstursánægju og setur ný viðmið í sínum flokki.

Hámarksafl

449 hö

Farangursrými

591 L

Háþróað

fjórhjóladrif

Ný upplifun bíður þín

Hönnunin sameinar kraftmikið jeppayfirbragð, straumlínulagaðar línur og nútímaleg smáatriði. Rúmgott innanrýmið er hannað með áherslu á þægindi og notagildi, með nægu plássi fyrir bæði ökumann og farþega. Farangursrýmið tekur 490 lítra og má stækka í 1.360 lítra þegar aftursætin eru felld niður. Að auki er hagkvæmt 101 lítra geymslurými að framan sem veitir aukið pláss.

Skilvirk hleðsla

Með hraðhleðslu allt að 220 kW er hægt að hlaða rafhlöðuna úr 10 í 80 prósent á um 25 mínútum við kjöraðstæður, sem tryggir þægilega og sveigjanlega upplifun.

Kraftmikill og lipur

Með tveimur rafmótorum og snjöllu fjórhjóladrifi skilar EVO AWD samtals 330 kW afli og 560 Nm togi. Útkoman er kraftmikil hröðun úr 0 í 100 km/klst. á aðeins 3,9 sekúndum, á sama tíma og stöðugleiki og stjórn haldast við krefjandi akstursaðstæður. Fjórhjóladrifið tryggir öruggt grip allt árið um kring – hvort sem ekið er á blautum vegum eða í vetraraðstæðum.

Löng drægni

Háþróaður 74,8 kWh Blade-rafhlöðupakkinn skilar allt að 470 km drægni samkvæmt WLTP, þannig að þú getur ekið lengra á milli hleðslna – hvort sem er í daglegum akstri eða á lengri ferðum.

Snjöll og stílhrein hönnun

Innanrýmið hefur einstakan og sérkennandi stíl sem sameinar notagildi og háþróaða tækni með skemmtilegum blæ. Straumlínulagaður miðjustokkurinn býður upp á nytsamlegt geymslupláss og skapar létta og rúmgóða tilfinningu í framsætunum.

Snjallvæddur veltiskjár

15,6''

Innbyggt

Google

Apple

CarPlay

Android

Auto

Velkomin inn í EVO AWD

EVO AWD er hannaður með þægindi og akstursánægju í huga, bæði fyrir stuttar og langar ferðir. Framsætin er auðvelt að stilla eftir þínum þörfum, auk þess sem hægt er að stilla bæði mjóbaks- og lærastuðning. EVO AWD býður einnig upp á ýmsar snjallar geymslulausnir í innanrýminu sem auka þægindi og skipulag. Hefðbundin varmadæla fylgir staðalbúnaði og getur sparað verulega orku sem rafbíllinn myndi annars nota til upphitunar í köldu veðri.

Hágæða búnaður og snjallar lausnir

Fimm stjörnu öryggi

Fimm stjörnu öryggi er staðalbúnaður í BYD-bílum, meðal annars þökk sé sterkri ,,cell-to-body'' yfirbyggingu, sjö loftpúðum, fjölbreyttum ökumannsaðstoðarkerfum og HD 360 gráðu myndavélakerfi sem auðveldar þér að leggja bílnum.

e-Platform 3.0

EVO AWD er búinn nýjustu 800V BYD e-platform 3.0, sem er hönnuð sérstaklega fyrir alrafknúin ökutæki. Með því að nýta framúrskarandi sérþekkingu BYD á samþættingu rafknúinnar tækni veitir e-platform 3.0 aukið öryggi og betri drægni í kulda, auk snjallrar akstursupplifunar sem setur ný viðmið fyrir nútímalega rafbíla

Stórt farangursrými

Farangursrýmið tekur 490 lítra og má stækka í allt að 1.360 lítra þegar aftursætin eru felld niður. Hvort sem um er að ræða stórinnkaup, helgarferðir eða virkt tómstundalíf, er farangursrýmið hannað til að gera daglegt líf einfaldara og sveigjanlegra.

Skoðaðu tæknilýsingu EVO AWD

Rafhlaða

Rafhlaða
Gerð rafhlöðuBYD Blade Battery(LFP)
Rafhlöðugeta (kWh)74.8
Nafnspenna (V)499.2
Hleðslutími AC8 h

WLTP-eyðsla

WLTP-eyðsla
Drægni – blandaður akstur (km)470
Drægni – borgarakstur (km)630
Eyðsla – blandaður akstur (Wh/km)17.8
Eyðsla – borgarakstur (Wh/km)13.3

Mál

Mál
Lengd (mm)4455
Breidd (mm)1875
Breidd með speglum (mm)2060
Hæð (mm)1615
Hjólhaf (mm)2720
Sporvídd að framan (mm)1580
Sporvídd að aftan (mm)1585

Aksturseiginleikar

Aksturseiginleikar
Gerð vélarRafmagn
DrifFjórhjóladrif
GírkassiSjálfskiptur
Hámarkstog560
Hröðun 0–100 km/klst (s)3.9
Hámarkshraði (km/klst)200
Fjöðrun að framanDouble-pivot McPherson strut suspension
Fjöðrun að aftanMulti- Link
Bremsur að framanFront ventilated disc brakes
Bremsur að aftanRear ventilated disc brakes

Þyngd og burðargeta

Þyngd og burðargeta
Eigin þyngd (kg)1990
Heildarþyngd (kg)2520
Fjöldi sæta5
Hámarksburðargeta (kg)435
Hámarks dráttargeta með bremsum (kg)1500
Hámarks dráttargeta án bremsa (kg)750
Farangursrými, sæti uppi (L)490
Farangursrými, sæti niðri (L)1360
Hámarks farangursrými (L)1850

Aðrar týpur

Kynntu þér ört vaxandi úrval af BYD bílum

Niðurhal

Velkomið að hlaða niður skjalinu um bílinn sem þú ert að skoða BYD EVO AWD . Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að, vinsmlegast hafðu þá samband við næsta söluaðila.

Ábyrgð

BYD EVO AWD kemur með 8 ára/250.000 km ábyrgð á rafhlöðu. Ábyrgð á bílnum er 6 ár/150.000 km. Allir bílarnir eru ryðvarðir hjá Mercasol í Noregi/Bílaryðvörn ehf., meðhöndlunin ver bílinn gegn ryðmyndun og lengir endingartíma hans. Ryðvörnin er innifalin í verðinu.