Skuldbinding BYD til umhverfisverndar

Hjá BYD leggjum við ríka áherslu á ábyrgðarfulla umhverfisstjórnun ökutækja okkar. Strax á hönnunar- og þróunarstigi er tekið tillit til lykilatriða eins og endingar, viðgerðarmöguleika og sjálfbærni. Þetta tryggir að ökutækin okkar uppfylli ströngustu kröfur um endurvinnslu og endurnýtingu að líftíma loknum, í samræmi við íslensk lög og reglugerðir.

Hvað skal gera þegar BYD ökutæki er orðið úr sér gengið?

Samkvæmt íslenskum reglugerðum, sérstaklega reglugerð 303/2008 um úrvinnslu ökutækja, ber skráðum eiganda eða þeim sem hefur skriflegt umboð hans skal skila úr sér gengnu ökutæki til söfnunar- eða móttökustöðvar sem hefur starfsleyfi til að meðhöndla slíkan úrgang.

Hvernig farga ég ökutæki?

Fyllir út stafrænt skilavottorð ökutækja frá Samgöngustofu: https://island.is/skilavottord

Eftir að skilavottorð er orðið útfyllt þá er ökutækinu komið til móttökuaðila.

Hvað er viðurkennd móttökustöð fyrir ökutæki sem er búið með sinn líftíma?

Móttaka og úrvinnsla úr sér genginna ökutækja er háð starfsleyfi. Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi fyrir móttökustöðvar. Viðkomandi heilbrigðisnefnd veitir starfsleyfi fyrir söfnunarstöðvar og bílapartasölur.

Viðurkennd móttökustöð uppfyllir öll ákvæði laga og reglugerða til að taka á móti, meðhöndla og farga úr sér gengnum ökutækjum með umhverfisvænum og lögmætum hætti. Slíkar stöðvar eru undir eftirliti Umhverfisstofnunar og þurfa að uppfylla kröfur um örugga losun spilliefna, skráningu og endurvinnslu.

Hvar finn ég viðurkennda meðhöndlunarstöð á Íslandi ?

Sveitarstjórn skal tryggja aðgang að söfnunar- eða móttökustöð fyrir úr sér gengin ökutæki sem falla til í sveitarfélaginu.

Nánari upplýsingar um endurvinnslustöðvar má finna á vef island.is ( https://island.is/skilavottord ). Einnig getur söluaðili BYD veitt þér leiðbeiningar og aðstoð við að skila eldra ökutæki á viðeigandi stöð.

Hver er ábyrgð framleiðanda?

Framleiðendur og innflytjendur vara og umbúða sem falla undir framlengda framleiðendaábyrgð skulu fjármagna og tryggja meðhöndlun vöru sem er orðin að úrgangi.

Framlengd framleiðendaábyrgð er hluti af mengunarbótareglunni (e. Polluter Pays Principle) sem kveður á um að sá sem veldur mengun skuli að jafnaði bera kostnað af því að draga úr henni eða koma í veg fyrir áhrif hennar. Slík kerfi hafa í mörgum tilfellum reynst vel við að tryggja hagræna hvata til lágmörkunar úrgangs og bættrar úrgangsstjórnunar.

Á Íslandi er framlengd framleiðendaábyrgð útfærð að mestu leyti með úrvinnslugjaldi og skilagjaldi. Gjaldið er lagt á viðkomandi vöru við innflutning eða við innlenda framleiðslu. Skatturinn innheimtir úrvinnslugjald af innfluttum vörum eftir tollskrárnúmerum, óháð því hvort viðkomandi vara ber toll.

BYD starfar í samræmi við þessar reglur og tryggir að úrvinnsla ökutækja sé framkvæmd í samstarfi við viðurkennda aðila.

Annað

Ef þú hefur spurningar eða þarft aðstoð við afhendingu á BYD bifreið sem er búin með sinn líftíma þá geturðu þú haft samband við Vatt ehf. Sem er bílaumboð BYD á Íslandi, Skeifunni 17 eða sent fyrirspurn á verkstaedi(hja)vatt.is eða soludeild(hja)vatt.is

Hægt er að skila inn rafhlöðum úr BYD ökutækjum til Vatt ehf. endurgjaldslaust. Vatt ehf. sendir þær áfram til endurvinnslu til viðeigandi aðila.

Hafa samband: verkstaedi(hja)vatt.is