FRUMSÝNUM ÞRJÁ NÝJA 100% RAFMAGNAÐA BYD BÍLA HELGINA 4 OG 5 MAÍ FRÁ KL. 12-16

 

Eftir mikla bið eru þrír frábærir BYD rafmagnsbílar mættir til okkar, BYD SEAL, BYD SEAL U og BYD DOLPHIN. Þér er boðið á mæta á þessa frábæru sýningu hjá okkur í Skeifunni 17 til að sjá og prufukeyra þessa glæsilegu bíla.

Það verður nóg um að vera á sýningunni en hún er haldin yfir tvo daga svo allir komast að!

Pylsuvagninn verður á svæðinu alla helgina svo enginn fari svangur frá okkur. Stilling verður með topptjald til sýnis alla helgina enda bjóða þeir upp á frábærar vörur. Candy floss og andlitsmálning verður í boði fyrir alla sem vilja, börn eða fullorðna á laugardaginn og Blaðrarinn verður svo með okkur á sunnudaginn og sýnir snilli sína í því að búa til blöðrudýr og fleira.

Í lokinn fara allir sem skrá sig í reynsluakstur í lukkupottinn okkar en í honum eru veglegir vinningar. Tveir heppnir sem dregnir verða úr pottinum vinna gistingu fyrir tvo á Hótel Rangá með þriggja rétta kvöldverði ásamt morgunverði.

Hlökkum til að sjá þig!